Ný útgáfa af Stundinni okkar

Við í Íslenskuskólanum í Jónshúsi höfum verið svo lánsöm að geta horft á íslenskt barnaefni í gegnum gervihnött. Kennsla í skólanum fer fram á laugardagsmorgnum og nestistímarnir hjá okkur hafa því oftast farið í það að horfa á íslenskt barnaefni. Nýlega bilaði gervihnötturinn í Jónshúsi og þá voru góð ráð dýr þar sem mikið af efninu á vef RÚV er lokað okkur sem búum erlendis.

Á vef RÚV er þó að finna efni sem er aðgengilegt og því tilvalið að nýta sér það til að viðhalda íslenskunni. Á vef Krakkarúv er t.a.m. að finna hinar geysivinsælu Krakkafréttir og nýja útgáfu af Stundinni okkar þar sem krakkar eru þáttastjórnendur.

Stundin okkar verður sett saman úr fjölbreyttum smáseríum. Þar má nefna Verkstæðið, þar sem krakkar láta ímyndunaraflið ráða og búa til eitthvað nýtt úr gömlum hlutum á verkstæðinu hennar ömmu, Málið, eins konar krakkaútgáfu af Kappsmáli þar sem krakkar keppa í þekkingu á íslensku máli og svo leikna þáttaröð, sem heitir Rammvillt og segir frá Kristínu og Arnóri sem fara saman í göngutúr og rata ekki heim.

Stundin okkar er elsti sjónvarpsþáttur landsins og þessi nýja útgáfa hefur vakið mikla lukku hjá okkur í Íslenskuskólanum í Jónshúsi. Ég mæli með áhorfi og hver veit nema mamma og pabbi hafi líka gagn og gaman af.

Góða helgi

Jórunn Einarsdóttir