Leikur að íslenskum orðum - Leikjavefur

Inni á vef Menntamálastofnunar er að finna hafsjó af námsefni í íslensku.

Leikur að íslenskum orðum er leikjavefur ætlaður til málörvunar í íslensku. Ég hef notað vefinn við kennslu í íslenskuskólanum í Kaupmannahöfn með góðum árangri en vefurinn hentar einnig mjög vel til þjálfunar heima. Markmið vefjarins er fyrst og fremst að kenna nemendum algeng orð, ritun þeirra, lestur og framburð.

Góða helgi

Jórunn Einarsdóttir